*Thelma*

Hér eiga allir tjá sig og ekkert vesen ;)

13.02.2007 22:44:57 / thelma86

Nyir tímar ...Nýtt upphaf ...

 

þá hef ég sagt skilið við centralið og það heitasta í dag er víst bloggar svo þar verð ég

 

 www.thelms86.bloggar.is

tékk it

 

Thelms


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 09:37:21 / thelma86

löngu kominn tími á nýtt blogg

 

ekki það að ég hafi einhverjar fréttir að færa en þá er nú samt allt í góðu að sýna smá lit hehe :haha:

en um síðustu helgi var bootcamp djamm sem var bara svona helvíti gaman það var hittingur hjá geira gen og svo var að sjálfsögðu haldið á kaffi ak þar sem var allveg brjálaður stemmari hehe :) svo var stella í bænum líka svo maður reyndi að eyða smá tíma með henni þar sem hún er nú ekki of oft hérna

en á eftir er ég að fara í endajaxlatöku já ég veit spennó.... ég vona bara að þetta verði ekkert mál dragi þetta bara úr og EKKERT vesen ... nenni ekki að standa í því að þetta verði vont...

svo langar mig doltið mikið að fara suður helgina 23-26.feb það er löng helgi í skólanum og ég er ekki að vinna svo það væri allveg upplagt að fara en þar sem ég er að fara út í mars og þarf að spara veit ég ekki hvort ég tími að fara... :$

en ég hef þetta ekki mikið lengra í dag blogga næst nokkrum endajöxlunum færri bwahahah

koma svo kvitta...


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 09:46:17 / thelma86

Djö er ég öflug í blogginu

já ég mundi segja það :)

en allt gott að frétta svosem,, ég laug nú þokkalega að ykkur í síðasta bloggi með myndirnar þær komu bara ekki 8| en ég reyni að bæta úr því sem fyrst...

en hvað er málið með þetta blessaða veður ég er allveg komin með leið á þessu sko!!! annað hvort má bara vera autt og hiti eða snjór og frost ég nenni ekki að hafa þetta endalaust til skiptis frost fyrirhádegi og snjór svo um 1300 þá er bara komin hiti :!:

tekið af www.mbl.is 

Þrír ungir menn gista nú fangageymslu lögreglunnar á Akranesi. Fjölbrautaskóli Vesturlands hélt skóladansleik í sínum húsakynnum í gærkvöldi og í kjölfar hans voru unnin eignarspjöll á skólanum, rúður brotnar og skemmdir unnar á bíl sem stóð í grennd við skólann. Tveir mannanna hafa viðurkennt aðild að málinu og telst það að sögn lögreglunnar upplýst. Þriðji pilturinn sefur enn úr sér áfengisvímuna. hvað er að gerast með fólk getur það ekki skemmt sér án þess að ver með læti eða !!!

held að það verði ekkert djamm þessa helgina... fór á snildar djamm síðustu helgi reyndar edrú en það bíttaði ekki neinu máli  það var alllveg jafn gaman :) 

svo var fyrsti þáttur af X factor í gær í smáralind og mér finnst þetta nú skemmtilegra en idolið sko miklu frjálslegra og skemmtilegra mikil keppni innan dómaranna hehe :) og Gylfi komst auðvita áfram :):haha: 

jæja nenni ekki meir

over and out

THELMS


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 19:50:28 / thelma86

JÆJA

jamm nýtt blogg

ég er svo að reyna að gera þessa síðu mína eik meira spennó en það er ekki allveg að virka finnst mér... ætla að fara að setja inn myndir líka og svona svo þið hafið nú eithvað að skoða  :lol:

annars er skólinn bara komið á fullt sem er ágætt er með fína stundatöflu bara einu sinni lengur en til 1 sem er fínt svo er ég í 3 einingum í fjarnámi svo þessi önn  ætti að verða fín verð með nokkrar vaktir í átaki svo verður maður nottlga að vera duglegur að æfa líka fyrir florida sko 8) hehe

minnir að í síðasta bloggi hafi ég sagt að Svala væri farin aftur til Mex en jú hún er komin aftur heim til að klára skólann vona að maður hitti hana oftar :)

ég er ekki í Boot Camp þetta námskeiðið og ég viðurkenni það að ég sakna þess að vera ekki með svo ég held ég skelli mér með á næsta námskeið :)

en hvað er málið með sumt fólk sem getur NÖLDRAÐ út af ÖLLU  það er allveg merkilegt hvað sumir nenna að nöldra yfir... líður þessu fólki svona ílla eða.. held að maður ætti að skoða aðeins sín eigin mál áður en maður fer að nöldra :klikk:

en jæja ætla að fara að setja inn myndir

over and out :S

Thelms


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:21:12 / thelma86

11.Jan 2007

jæja ætli það sé ekki komin tími á það að blogga pínu

en fyrstu 11 dagar ársins hafa verið mis góðir

byrjaði fínt þegar nýtt ÁTAK var opnað og allt gekk vel og allir hressir:)

en Fimmtudaginn 4.jan borði ég salatbar í hagkaup sem var sá síðasti sem ég mun versla ældi í ekki nema 7 tíma streit eða með sovna 5-10 mín pásum og varð bara frekar mikið veik með hita og öllu því sem því fylgir...

en í dag er ég orðin hress :) er bara búin að vera að vinna og brasa skólinn er að byrja, byrjar frekar rólega sem er bara ágætt er bíða með svar um hvort ég geti tekið sögu í fjarnámi og svona

styttist í Florida ferðina í mars

Fa mín er farin aftur út til lúx og svala farin aftur til Mexico og stella aftur til kefló

en ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga á nýja árinu sé til hvað ég held það lengi út

THELMS


» 14 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 18:35:33 / thelma86

Árið 2006 á enda og 2007 að hefjast

já það er allveg skilda að koma með blogg á þessum degi gera upp árið 2006

JANÚAR  í janúar ákvað ég að fara ekki í skóla þar sem haust önnin hefði nú ekki gengið vel og var þá tímabært að taka sér pásu ég fór í fulla vinnu í Átaki og fannst bara fínt að vera ekki í skóla :) en janúrar er svona eins og lengsti mánuðurinn á árinu eða manni finnst það.. Tinna ósk flutti suður og var það afar skrítið að ein úr hópnum yfirgaf litlu akureyri og fór í borgina..

FEBRÚAR  febrúar er aftur á móti mánuðurinn sem er "styðstur" hann er nottlega bara 28 dagar svona yfirleitt ;) en einnig á ég afmæli í þeim mánuði ásamt mörgum öðrum sem  ég þekki ég fór suður  til að hitta hana Tinnu mína og reyna að telja henni trú um að hún hefði gott að því að vera í borgini hehe :) nokkrum dögum eftir að ég kem heim fer ég með ömmu minni í Skartgripabúðina í bænum sem er ekki frásögufærandi nema að þar hitti ég Dagnýju Broddadóttir og hún fer að spurja hvort ég sé í skóla og ég neita  því og þá spyr hún hvort mig langi að koma út til hennar sem au-per ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að segja en fannst þetta afar spennandi og sagðist hugsa það :) fór í átak og sendi henni póst um að mig langaði að koma og það var síðan bara allt ákveðið og ég mundi fara í byrjun mars :) svo spurði hún hvort ég ætti vinkonu sem vildi koma líka og var það Fa sem varð fyrir valinu vissi að hana langaði að gera eithvða annað en að vera á ak svo hún ákvað að koma með :) einnig átti e´g afmæli 24.feb og bauð ég vel völdnum vinkonum að koma í mat fínasta kvöld tinna lóa á svo einnig afmæli 27.feb ;) svo þessi mánuður var afar skemmtilegur og afar fljótur að líða

MARS  þá var farið að ákvða hvað skildi taka með og græja allt fyrir brottför þann 6 ég og fa vorum afar spenntar að fara þó við vissum varla hvar Lúxemborg væri en við fórum út og lentum í afar skemmtilegum ævintýrum á leiðinni :) komum út og okkur leist afar vel á þenan stað :) mars var afar góður mánuður og skemmtilegur

APRÍL   þá fermdist litli bróðir minn  og ég fór til Afríku í fyrsta og eflaust eina skipti þetta var afar skemmtilega ferð apríl var afar fljótur að líða og afar skemmtilegur

MAI  í mai fórum við stelpurnar sem vorum úti að passa til SALOU  í snildar ferð það var bara gaman að fara þangað aftur :) í mai fékk reyndar mamma mín heilahimnubólgu og bólgur á heilan það var reyndar ekki gaman að vera úti þegar það var en ég var hjá svo ymdislegri fjölskyldu að það hjálpaði til  en svo útskrifaðist hún einnig sem sjúkraliði og náði hún að fara í útskriftina. Ég kom heim 31 mai eftir  3 frábæra mánuði sem eg mun aldrei gleyma :)

 JÚNÍ    þá kom ég norður og fór beint að vinna í ÁTAKI og fannst allveg fínt að koma heim og byrja að vinna og hitta allar mínar yndilslegu vinkonur aftur það var doltið um djamm í juni sem var alveg snild var að vinna frekar mikið en það var líka í lagi búin að hafa það gott í 3 mán hehe :)

JÚLÍ  í júlí fór ég til R-víkur í eina viku og fór í lesblinduleiðréttingu  sem tókst svona afar vel og var ég afar sátt með þetta :) það var bara gott veður í borginni þessa viku sem eg var þar sem hefur held ég ekki skéð áður það er ALLTAF rigning í r-vik hehe fa kom einnig heim þann 19 júlí og sótti ég hana á völlinn

ÁGÚST   versló  sem var nottlga bara endalaust djamm og mikið fjör einnig fæddist fyrsta barnið í nánasta vinahópnum en hún Tinna Ósk eignaðist litla stelpu sem kom reyndar aðeins fyrr en búist var en var hress og afar sæt :) svo hófst skólinn í öllu sínu veldi líka í ágúst og stella flytur suður nánar tiltekið til keflavíkur í skóla

SEPTEMBER  sólinn kominn á fullt og allt að gerast fa fer aftur til Lúx og sonja ákveður að stinga af og flytur  til danaveldis  það voru bara allir að stinga af í sept Tinna lóa ákveður að fara með hjörvari til spánar en var sem betur fer bara í viku og rannveig fer til tenerif svo eg var næstum bara ein hér eftir en þær komu nú sem betur fer aftur ;)

OKTÓBER  vá eg er bara allveg stopp hér ekkert sem poppar upp hja mér í þessum mánuði 8|

NÓVEMBER  fór suður í snildar ferð með Diddú og Bríet það var bara gaman djamm verlsað og farið á fittnes þar sem mamma henanr diddúar var að keppa og stóð sig voða vel  svo styttist heldur í prófin sem voru bara í byrjun des mánaðar svo maður var farin að undirbúa sig fyrir prófin lítið um djamm. Tinna lóa tjáði okkur þær gleði fréttir að hún væri ólétt :) og hún og Hjórvar gerðust nágrannar mínir sem er snild :)

DESEMBER  byrjaði með prófum nákvæmlega 1.des  sonja kom líka þá heim frá svíþjóð en eg var líka komin í jólafrí þann 8 sem var afar fínt fór þá bara að vinna á fullu þann 16.des fórum við stelpurnar út að borða og svona því sandra áti afmæli þann 7 og rannveig þann 14 og sleppa að við að gefa jólagjafir og fara því út að borða í staðinn og þegar við erum komnar þangð þá kom hún Sudarat óvænt frá lúx sem var aldjör snild en vá hvað mér brá ég átti svo ekki von á henni þar sem hún var buin að ljúga að hun væri að fara í skíðaferð bara gaman að fá hana þarna vorum við allar stelpurnar heima á ísl  Freyja fór út til Fjölskyldunar þann 1.des en þau flutti til orlando og fór hun þangað til að vera með þeim stella kom heim þegar hún var búin í prófum svo kom freyja heim aftur 21 des. Rannveig útskrifaðist þann 20 sem er bara æðislegt orðin stúdent og sjúkraliði

Þetta er svona nokkuð sem hefur verið gert á þessu ári

En ég efast um að nokkur hafi nennt að lesa þetta en það var samt afar gaman að rifja árið svona upp :) en ég nennti samt ekki að skrifa allt þetta var svo skemmtilegt ár og mikið sem var um að vera og gerðist markt mikið og skemmtilegt


» 14 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 12:10:34 / thelma86

Sandra Kristín 20ára

jæja þá er örverpið í vinahópnum loksins buin að ná okkur í aldri orðin 20 ára

til hamingu með daginn elsku sandra mín

hafðu það gott í dag :*


» 14 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 15:36:50 / thelma86

jæja

þá er best að blogga smá

ekki að ég hafi eik mikið um ða blogga... en það er semsagt komin VETUR og það finnst mér ekki spes þoli ekki að skafa af bílnum og það OFT á dag langar í svona ferðabílskúr sem ég get tekið með mér hvert sem ég fer hann verður að vera með svona hitara í ;) góð hugmynd ??  svo er ég svo ógeðsega bílhrædd á veturnar að það er ekki eðlilegt  en sumum leiðist það ekki... nefni enginn nöfn... ;)

en svo styttist mjög svo mikið í jólaprófin og þá sömuleiðis í jólafríið... fínt með fríið en ekki spes með prófin. en eg byrja í prófum 1.des og er buin 8.des sem er svosem ágætt...

en vá hvað þetta er  innihaldslaust blogg 8|8|

svo ég læt þetta nú bara eiga sig í bili :$

kannski að ég hætti bara að blogga.. held að það sé ekki svo vitlaust... :klikk:

THELMS-sem er sennilega hætt í blogginu..8|


» 20 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 06:54:03 / thelma86

Komin heim...

Sælar!!

verður langt blogg !!!!!

já komin tími á eitt blogg þar sem ég er komin heim úr borginni

þetta var snildar ferð frá upphafi!! ætluðum að leggja af stað á föstudeginum um kl 16 en það var ekki fyrr en um 18 eins og gerist stundum rigning og skemmtilegheit á leið suður en það bíttaði ekki þegar við komum skutluðum við Bigga til Hverargerðis og svo aftur í borgina´fórum heim og fljótlega að sofa

svo var það ræs 08:20 og haldið á BOOTCAMP æfingu í skeifunni ;) sem var bara gaman  ekki nema 1500 endurtekningar í upphitun ja nákvæmlega... en skemmtileg æfing samt :)  svo var það kringlan og smáralind... en um kvöldið var það FITTNES þar sem mamma hennar diddúar var að keppa og stóð sig líka svona vel 3.sæti ;) ekki slæmt það :) en svo var það heim en ég og bríet vorum ekki allveg á því að fara út vorum frekar þreyttar en Diddú lét sem hun heyrði það ekki og sagði okkur að fara í djamm gallann sem og við gerðum og dribbuðum okkur á jammið ;)

hittum Rúnar Pet sem ætlaði að menningarvæða okkur ;) fórum á sólon og vorum þar næstum allan tíman mjög gaman ágætlega mikið rok þegar við komum út en svona er þetta bara í Borginni ;) sunnudagurinn tekinn ágætlega snemma og í kringluna og smáralind aftur og í nýja IKEA  um kvöldið fór ég í mat til hveró og svo bara aftur heim...fórum í ísbúðina í vesturbænum sá ís kemmst næst brynju ísnum ;) en skutluðum við diddu þar sem hun gisti á sunnud og viti menn það SPRAKK dekk á bílnum  á bílastæðinu en Rúnar reddaði því á no time :)

Mánudagurinn- ég nennti ekki á æfingu og sváfum við bríet aðeins lengur en hun fór ut um 8 og dreif sig norður til að fara að vinna en eg svaf sko lengur ;) en eftir hádegi var það  kringlan ja þið lásuð rétt kringlan í 3 skiptið hehe  svo bara farið norður seinnipartinn

náði reyndar ekki að gera allt sem ég ætlði að gera en svona er það bara stundum hitti Írenu og Steina í svona 2 min á djamminu... fór ekki í þessar heimsóknir sem ég ætlaði í en það verður bara næst :)

koma inn myndir í vikunni ;)

til að gera LANGA sögu stutta var þetta snildar ferð ;)

Takk fyrir helgina stelpur mínar þetta var bara snild:)

Rúnar takk fyrir menningarvæðinguna ;)

Stína frænka takk fyrir gistinguna ;)

THELMA8)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 18:10:00 / thelma86

jæja JÁ

já það er sko komin vika síðan síðast og rúmlega það... bæti það upp núna

en það er svosem ekki neitt nýtt að frétta

en ég var svona eiginlega að átta mig á því í gær að það er afar stutt eftir af þessu skólaári ekki nema 28 dagar í próf ja hvorki meira né minna... sjæs sko 8| en það þýðir bara eitt að ég verð að fara að skiptuleggja nóv hvernig ég les fyrir hvert próf ekki allveg að nenna því en þetta er allveg að verða búið:!: ég byra í prófum 1 des en er líka buin 8 des og þá tekur við VINNAN sem er bara gott mál ;) 

í morgun var ekki nema -9 gráður hvað er það sko er þetta ekki einum of miið jú ég myndi nú halda það... en ég lét það nú ekki stoppa mig og dreif mig í Bootcamp sem var mjög fínt kalt en fínt ;)

svo er það bara REYKJARVÍK um helgina :) jebb eg Bríet og Diddú erum að fara í "meningarferð" í borgina og planið er

  • Bootcamp æfing á laugard morgun
  • Fitness á laug kveldið :)
  • Djamm
  • IKEA
  • Kringlan
  • Smáralind

þeta er allavena planið svo verður eflaust eik meira gert ;)

svo er hún Tinna Lóa mín og Hjörri  að koma og flyta  í skessugilið verða Nágrannarnir  mínir :)sem er ekki slæmt góðir grannar þar á ferð ;)

en vó þetta er allveg komið nó sko

Thelms


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 14:33:51 / thelma86

Sunnudagur til sælu

jæja þá er enn einn sunnudagurinn runninn upp..

en í gær var óvissuferð hjá Átaki og var það bara rosalega gaman :) ótrúlega skemmtilegur hópur :) fórum t.d á skauta sem var bara snild sko :) hef ekki farið síðann eg hætti að æfa og ég hafði nú ekki allveg gleymt hvernig maður á að gera þetta eheh :) einnig fórum við að borða á þarna nýja staðnum Plaza held eg að hann heiti mjög góðar pizzur þar :)
en svo fór ég í Afmæli til Freyju minnar og Stellu en þær voru að halda upp á 21 árs afmælið Freyja átti afmæli þann 7 og stella núna á morgun :) til hamingju með það sætu sætu :*

en svo fór ég í sjallann ok þetta var allveg gaman en vá hvað ég var greinilga buin að gera mér miklar vonir því ekki fannst mér þetta GEÐVEIKT  hann spilaði of róleg lög sko.. en samt allveg gaman ;) 

en ég er bara ekkert þunn í dag sem er bara mjög gott :)

annars er það bara leti dagur í dag og reyna að hitta stellu mína áður en hun fer suður

og Sonja mín ef þú lest þetta þá hvernig væri að fara að koma með blogg ??:) og ég lofa að redda þessu með skypið í vikunni :) kann minnst á þetta en veit að heiðdis kann á þetta svo kannski að eg biðji hana að hjálpa mér :) sakna þín voða mikið

jæja þá er það ekki fleyra að sinni,, muna að kvitta

THELMS


» 16 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:09:03 / thelma86

jæja þá

þá held ég að veturinn sé bara á næsta leyti :S sem ég er ekki allveg nógu ánægð með sko... en svona er þetta bara á Íslandi... en það er annars ekki mikið í fréttum var hérna ein heima um helgina með Köru og Viktor sem var allveg ágætt sleppur allveg... en ekki oft á ári hehe

en á Laugardaginn bættust svo 3 önnur börn við ég var að passa fyrir stefaníu þau Hákon,Guðrún og svo var Ríkey líka með en þetta gekk bara eins og í sögu ;) svo um kvöldið bakaði eg pizzu fyrir Köru og Viktor og bauð Tinnu lóu og heiðdísi að koma líka snildar pizza ekki satt stelpur??

svo gerði eg nú ekki mikið annað,, en á sunnudaginn þá var sko sofið út allveg til að verða 11 uss... en svo dreif eg mig í göngu með tinnu lóu :)  afar hressandi :) svo var það bara saga 103 sem tók við.. kikkaði svo á Tinnu lóu sem er alltaf að æfa sig í eldhúsinu hehe og gellan var bara að baka skinkuhorn og snúða mjög gott hjá henni ;)

en þetta er nú orðið nokkuð nett hjá mér ekki satt

koma svo og kvitta ;)

THELMS


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 22:07:54 / thelma86

úti er farið að snjóa ......

já ég hef ákveðið að blogga án þess að vera beðin um það hehe

og það er farið að snjóa :evil: djö...

EN

en við eum að tala um snildar helgi sem var að enda

en á laugardaginn var útiæfing sem maður var buin að bíða eftir og hún stóðst allar væntingar var doltið erfið á köflum en helvíti skemmtileg fullt af nýjum æfingum :) þeir komu að sunnan strákarnir Birgir og Evert magnaðir strákar :) það var riging ,kuldi drulla og allur pakkinn sem gerir þetta bara skemmtilegra vissi sem betur fer EFTIR æfinguna að við gerðum hermannaskrið á túninu og það var allt í kanínu skít8| hehe

svo fór ég á þrekmeistrann eftir hágdegi sem var svona helvíti magnað ;) boot camp að meika það ;) enda ekki við öðru að búast hehe

svo var það nottlega massa djamm um kvöldið ég fór heim til Bríetar og tókum við okkur til vorum búnar að ákveða að þetta mundi bara taka 1 tíma en nei auðvita gerði það, það ekki hehe fórum svo heim til Sólrúnar í smá boot camp teiti fámennt en góðmennt hehe :) svo var það hinn eini sanni páll óskar sem stóð fyrir sínu og djö... voru margir ;) og stemmingin rosaleg :)  tala nú ekki um stemmarann í nætursölunni Jég og bríet erum búnar að lofa okkur á boot camp æfingu í borginni þann 4 nov og verður maður ekki að standa við það uuuu jú ;) enda frí í skólanum á mán svo þetta er bara snild :) svo eg stefni á borgarferð þá í menninguna eins og sumir myndu segja það

svo var hún freyja mín 21 árs á laugardaginn til hamingu með það sæta mín

æji er þetta er komið vel gott í dag

THELMS


» 15 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 20:37:41 / thelma86

pressa pressa

mér finnst ég varla búin að blogga þegar ég þarf að fara að henda inn nýrri færslu en tíminn er bara svona rusalega fljótur að líða greinilega...

en eg man nottlega ekki hverju eg laug í ykkur síðast svo ég reyni nú að finna eik nýtt núna.. en þessi vika er bara búin að vera ágætt eða bara nokkuð góð :S reyndar hef eg ekki drullað mér í boot camp mán og mið en ég hef nú samt farið á æfingu svo þetta er svosem í lagi  sængin er bara eik svo miklu betri en veðrið úti hehe... skrítið

en svo er útiæfing á laugardaginn frá 10 til 12 snild það er svo gaman á þessum útiæfingum :) svo á freyja mín afmæli á laugardaginn og ætlum við  nú að skella okkur í sjallann þar sem Páll óskar mun trilla líðinn hehe og er meira að segja að spá að fá mér í glas allt að gerast :) en það vantar stellu :(

svo er frumfluttningur á morgun á öllum nýju prógr í átaki í Body-step,Body Pump,Body Combat og Body Balance kikkð á það á www.atakak.is  og mætið auðvita:D

en þar sem ég hef svo minnst um að segja og hvað þá blogga þá ætla ég að biðja ykkur um að deila sögum um þegar þar að segja ef þið hafið lent í afgreiðslufólki sem var frekar utan við sig í vinnunni ... nema nottlega þið hafið sögur af ykkur sjálfum t.d siggi,bríet,fa,svala, endilega deila þessu með okkur

bið að heilsa ykkur í bili

THELMS


» 28 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 18:21:44 / thelma86

jebbs

jæja nú er það blogg :)

man nú ekki hverju ég laug í ykkur síðast... en eg finn eitthvað...

ég var semsagt ein heima síðustu helgi sem var bara nokkuð ljúft sko :) en þau fóru öll suður á fimmtudaginn og komu ekki heim fyrr en á mán :) en eg þorði nú ekki að bjóða fólki í heimsókn svo það var nú róleg helgi í skessugilinu  reyndar á laugardeginum breytti ég herberginu mínu með hjálp Áslaugar vinkonu mömmu sem var að redda hlutunum ;)

en svo er frí í skólanum á Föst vá hvað ég er sátt með það sko bara sofa út... eða ekki bara boot camp kl 06:10

en svo er Sonja flutt til Svíþjóðar og hefur það víst gott þar:)

Fa mín á leið til Parísar í dag öfunda hana allveg smá sko :)

vá eg hef ekkert að segja ykkur 8| 8|

en vegna mikillar pressu enda ég þetta massa blogg á nokkrum myndum frá "brjálaða" partyinu hehe

Ég og Magna

Allt a verða vettlaust hehe

Siggi og fína glasið sem hann valdi sér,, þurfti sennilega að færa bjórglösin til að finna þetta glas hehe ;)

en ég set inn myndir í boot camp teiti

THELMS


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012